Leyndarlíf Walters Mitty

Nú berast þær ánægjulegu fréttir utan úr heimi að endurgera eigi kvikmynd eftir hinni dásamlegu smásögu James Thurber, The Secret Life of Walter Mitty. Mun það vera sjálfur Ben Stiller, sem á heiðurinn að framtakinu, og ætlar sér hvoru tveggja, að leikstýra og leika aðalhlutverkið. Ef einhvern tíma hefur verið skrifuð smásaga, sem blása má upp í heila bíómynd, þá er það þessi. Auk þess, nú um mundir, þegar kynjabaráttan virðist fara harðnandi, hlýtur Thurber að eiga erindi við okkur öll - eða að minnsta kosti okkur karlana. Samt sé ég Stiller ekki alveg fyrir mér í titilhlutverkinu (sem Danny Kaye lék kostulega í gömlu filmútgáfunni). Þar hentar best litlaus leikari, lítt áberandi meðaljón, sem orðið getur frækinn garpur og sjarmatröll þegar aðstæður kalla á.

 

Reglulega - á um þriggja til fimm ára fresti, þegar mig langar til að hlæja upphátt - tek ég fram  smásagnasöfnin tvö eftir Thurber sem ég á, The Beast in Me and Other Animals og The Thurber Carnival. Þetta eru mestmegnis smásögur, ritgerðir og hversdagsdæmisögur úr nútímanum. Annars birtust sögur af leyndarlífi ýmissa persóna í kringum 1940. Fáum árum á eftir Walter Mitty kom út hneykslunarverð sjálfsævisaga, The Secret Life of Salvador Dalí, þar sem katalánski listamaðurinn lýsti því stóryrtur hvers lags snillingur, undrabarn og ólíkindatól hann hefði verið verið allt frá fæðingu. Thurber var ekki lengi að henda þann bolta á lofti og skrifaði í kjölfarið kostulega háðsgrein/smásögu, The Secret Life of James Thurber, þar sem hann ber uppvöxt sinn í Ohio saman við æsku Dalís og þykir ævi sín heldur ómerkileg í samanburði við Katalánann fræga. Þessi grein/smásaga Thurbers er með því fyndnara sem hægt er að lesa. Eftirlætissögur mínar eftir þennan mergjaða grínista eru þó sennilega The Macbeth Murder Mystery, þar sem nýju ljósi er varpað á morð þeirra Duncans konungs og Banquo, og Bateman Comes Home, paródía á Suðurríkjasögur Erskine Caldwell (en hver man sosum lengur eftir Caldwell, frekar en Thurber?)


Bloggfærslur 11. maí 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband