Menntastefna byggð á úreltum forsendum

Ég vil kærlega þakka Aðalheiði Steingrímsdóttur, formanni Félags framhaldsskólakennara, fyrir skelegga grein, Menntastefna byggð á úreltum forsendum, í Fréttablaðinu í dag (fimmtud. 31. jan. 2013; bls. 24). Þar tekur hún fyrir nýlega skýrslu starfshóps forsætisráðuneytis um samþættingu mennta- og atvinnustefnu, og sýnir glöggt hvernig starfshópurinn reisir á úreltum hugmyndum um gildi menntunar, m.a. þeirri sýn sem nefnd hefur verið "McDonalds-væðing" í menntakerfinu. Vonandi endurspeglar skýrsla þessi ekki viðhorf núverandi stjórnvalda; ella má örvænta um framtíð menntunar í landinu. Vil ég vekja athygli alls áhugafólks um menntamál á grein Aðalheiðar, en hana má einnig finna á visir.is.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

En hver er & hvar er hin rétta stefna inn í framtíðina?

ÞAÐ ER ALLTAF DÝRMÆTARA AÐ KOMA MEÐ HIÐ RÉTTA "LEIÐARLJÓS"

frekar en bara að gagnrýna aðra.

=Hvað þyrfti að leggja meiri áherslu á & hvað mætti missa sín?

Jón Þórhallsson, 1.2.2013 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband